Публикуется по изданию: Sögur Noregs konúnga frá Magnúss Erlíngssonar / R. K. Rask (Fms. B. VII). 1832.
Magn. berf., k. 2
[…] Hákon konúngr var hálffertögr, þá er hann andaðist. Hann hefir einnhverr höfðíngi vinsælstr verit í Noregi af allri alþýðu. Hann hafði farit norðr til Bjarmalands, ok átti þar mikla orrostu, ok fèkk sigr. (Bls. 3–4)
Saga Sigurðar Jórsalafara (Magnússona), k. 23
Sigurðr konúngr fèkk Málmfríðar1, dóttur Haralds konúngs Valdimarssonar austan ör Hólmgarði. Valdimar konúngr var son Jarisleifs gamla ok Íngigerðar, dóttur Ólafs sænska, en móðir Haralds konúngs Valdimarssonar var Gyða gamla drotníng, dóttir Haralds konúngs Guðinasonar af Einglandi. Móðir Málmfríðar drotníngar var Kristín, dóttir Ínga Steinkelssonar Svíakonúngs. Önnur dóttir Haralds konúngs Valdimarssonar var Íngibjörg, er átti [Knútr konúngr lávarðr2, son Eiríks eygóða Danakonúngs; hann var son Sveins konúngs Úlfssonar. Börn þeirra Knúts lávarðar ok Íngibjargar voru þau Valdimar, er konúngdom tók í Danmörk eptir Svein Eiríksson, ok Margret, Kristín, Katrín. Margretu átti Stígr hvítaleðr; þeirra dóttir var Kristín, er átti Karl Sörkvisson Svíakonúngr. Þeirra son var Sörkvir konúngr, faðir Jóns konúngs. (Bls. 111)
1 Málfríðar, H
2 Hnútr jatvarðr, H
Hák. herð., k. 22
[…] Valdimar konúngr var frændi skyldr Magnúss konúngs. Þær voru systur, [dætr Haralds konúngs ör Görðum austan (hann var son Valdimars Jarizleifssonar1), Íngibjörg, móðir Valdimars konúngs, ok Málmfríðr, móðir Kristínar, móður Magnúss konúngs. […] (Bls. 281–282)
1Frá merkinu [v. í H; en innsetníngina v. í Hk.